Blogg

7.8.2009

Jæja þá.... :)

Góðan og blessaðan daginn allir saman :)

Ég hef nú ekki alveg verið sú duglegast við að blogga og setja inn myndir og prinsessunum mínum, en ætla að bæta úr því núna ;)

Salóme er búin að vera í rúmar 4 vikur í sumarfríi og er bara búin að hafa það fínt í sumarfríinu.
Ólafía var að passa hana í nokkra daga, sem henni fannst alveg æði... enda elskar þetta barn að vera úti :)
Hún er rosalega dugleg að pissa í koppinn sinn og líka í klósettið, mamman keypti prinsessu klósettsetu og var mín bara rosa ánægð með það ;) Rosa dugleg þessi litla dama ;)
Hún er rosalega dugleg að babla og tala :) Bablar sko alveg útí eitt, ef maður mundi nú skilja allt sem að hún er að segja manni :) haha.. bara æðislegt sko;)
Henni tókst að fá sér eitt stykki gat á höfuðið. Helgina 24.-26.júlí fórum við á Ísó og gott betur en það við fórum á ættarmót á Núp. Og á laugardeginum datt hún á gluggakistu og við brunuðum með hana á Ísó og þurfti að sauma 2 spor í ennið á henni, en hún stóð sig eins og hetja :) Mamman átti held ég meira bátt heldur en sú stutta ;)

Thelma Sif er 3mánaða í dag :) Endalaust fljótt að líða þessi tími... :) En hún er alltaf jafn góð þessi elska. Nánast bara sefur og drekkur, en er farin að vaka aðeins meira núna :)
Hún spjallar alveg á fullu og brosir útí eitt, bara yndisleg :)
Salóme er alltaf jafn góð við hana, kyssir hana og knúsar hana, stundum kanski aðeins of mikið ;) hehe... 

Við fórum svo á Sigló og vorum í viku, sem var bara æðislegt útí eitt, nema að veðrið var sko ekkert spes.. Ringdi bara ringdi,,, nema á miðvikudaginn þegar við fórum heim, þá var sko komin bongóblíð, Ha? er það ekki alveg típíst :)
Salóme er voðalega hrifin á Valíant, en... Valíant er ekket voðalega hrifinn af henni og lét sig bara hélst hverfa meðan Salóme var á stjá ;) hehe... svo hljóp hún á eftir honum þegar hún sá hann og kallaði "assja" ( sem þýðir náttla Kisa;) ) hehe...

Jæja þetta ætti nú að vera gott í bili;)
Ætla nú að fara að sinna fallegu fjölskyldunni minn :D

Hafið það gott...

Bestu kveðjur frá fjölskyldinni á Breiðhól 11 :)


Skrifað 7.8.2009 kl. 10:37 af

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 18
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 17
Gestir í gær: 8
Samtals flettingar: 85399
Samtals gestir: 33006
Tölur uppfærðar: 19.3.2010 08:34:26