Blogg

21.1.2009

Gleðilegt árið og allt það :)

Jæja jæja... 
Ég er sko alltof löt við að setja inn myndir... tss tss....emoticon
En af okkur er allt flott að frétta... Heimasætan er sko orðin leikskólastelpa :) jebbjebb mikið rétt... litla barnið mitt er byrjuð á leikskóla. Hún byrjaði í aðlögun þri. 6.jan og fékk svo einhverja smá ælupest... þannig að ég hélt henni heima á mið. og svo fórum við aftur á leikskólann á fim. og fös. og mamman stakk af framm og það gekk bara voða vel, en maður var voðalega lítil í sér.
Hún meira að segja tók uppá því að vakna á nóttunni og garga í hátt í 2 tíma.. again...!!
Alla síðustu viku var hún voðalega lítil í sér og ég sjálf byrjaði að vinna á þri. og var bara að vinna til hálf 4 og 4 því sú stutta var frekar lítil í sér. Á sunnud. svaf hún sem betur fer alla nóttina og hefur gert sem betur fer síðan. 
Svosíðustu 2 daga vorum við báðar til 5 og hún var aðeins lítil í sér á mán en í gær var hún svona líka svakalega dugleg... emoticon Mamman alveg að springa úr stolti...!! Æðislegt ef að hún ætlar að vera svona dugleg áfram :D Yndilegt alveg sko....
Það er fínt að vera byrjuð að vinna. Nauðsynlegt að komast aðeins út að vinna áður en maður fer aftur í fæðingarorlof :) 
og að litla krílinu er allt flott að frétta, það sparkar sko vel í mömmu sína ;) Hlakka til á fös. því að þá er ég loksins að fara í mæðraskoðun nr.3 og næstum gengin 27vikur þá... frekar langt á milli skoðanna en svona er þetta víst bara :)

æji.. ég er etthvað svo voðalega tóm í hausnum núna:)
Ætla að fara að horfa á söngvaborg með prinesessunni minn ;)

Myndinar eru að hendast inn.....

Verið dugleg að skoða :D

Bestu kveðjur frá Breiðhól 11 :)

Skrifað 21.1.2009 kl. 10:52 af

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 26
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 28
Gestir í gær: 6
Samtals flettingar: 85435
Samtals gestir: 33014
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 23:20:21