Blogg
11.12.2008
Loksins... loksins.... ;)
Jæja þá... þá er loksins kominn tími á smá blogg 
Það er bara fínt að frétta héðan af okkur...
Salóme verður alltaf duglegri með hverjum deginum, hún bablar og bablar og hleypur og hleypur og fiktar og fiktar
hehhe.... þetta er sko ALGJÖR orkubolti, það er sko ekki tekið af henni og mamman er sko orðin ansi móð á því að hlaupa á efir henni
En Salóme byrjar í aðlögun á leikskólanum 6.janúar, það verður sko stuð
henni finnst nú ekki leiðinlegt að leika við fullt af krökkum :D
Svefnin hefur bara gengið vel, jii... þetta er bara æði, við leggjum hana uppí rúm kl.sona 20-20.30 og hún fer yfirleitt bara strax að sofa en auðvitað kemur það fyrir að hún kvarti smá
og svo sefur hún alla nóttina og er að vakna svona frá 6.30-8 en í morgun vaknaði hún ekki fyrr en kl.8.15... lúxus eða hvað
Við foreldrarnir erum ekkert smá stollt af prinsessunni okkar og líka guðlifandi fegin að geta loksin sofið heila nótt
híhí....
Litla krílinu í bumbunni líður bara vel
Við fórum í 20vikna sónarinn á mið. í síðustu viku og kom bara allt flott út þar
Jólainnkaupin eru nánast búin hér á bæ, jebb ég hef sko aldrei verið jafn snemma í þessu skal ég segja ykkur, ég byrðjaði meira að segja í okt að kaupa
og svo er ég búin að skrifa á jólakortin, á bara eftir að fá myndirnar í þær og loka umslögunum
Og viti menn... Ella er búin að baka smákökur
já ekkert smá stollt af sjálfri mér, ég bakaði á sunnudaginn hálfmána og þeir heppnðust svona helvíti vel hjá mér og þeir eru nánast búnir þannig að ég skellti bara í aðra uppskrift áðan
dugnaðarforkur hér á ferð sko
hehe....
Við Salóme skelltum okkur á jólaball með Brynhildi og fjölskyldu, það var jólaball á leikskólanum hjá Gísla Steini og það var nú svaka fjör. auðvitað mættu jólasveinarnir og gáfu krökkunum pakka og Salóme var nú ekkert hrædd við Jóla, en hún passaði sig samt að mamman væri hjá henni
Heryrðu ég skellti inn fullt af myndum í dag... bara endilega skoðið og kommentið
Og já... það kommentaði einhver aðili leiðindar komment þannig að ég er mikið að spá í að skipta um lykilorð á myndunum, þannig að bara endilega sendið mér og biðjið um nýja lykilorðið
Hafið það gott öllsömul...
Kveðja af Breiðhól 11
Flettingar í dag: 13
Gestir í dag: 7
Flettingar í gær: 26
Gestir í gær: 7
Samtals flettingar: 85377
Samtals gestir: 33001
Tölur uppfærðar: 18.3.2010 22:55:34

