Blogg
2.11.2008
Heil og sæl...
Góða kvöldið
Ætli það sé ekki kominn tími á smá blogg hér á þessu bæ
Við héldum uppá 1 árs afmælið hennar Salóme síðasta laugardag og gekk það svona líka ljómandi vel, það mættu bara flest allir sem er bara æði og fékk hún fullt, fullt af fallegum og skemmtilegum gjöfum
Bara TAKK KÆRLEGA ALLIR FYRIR LITLU PRINSESSUNA OKKAR
Sú stutta átti sko ekki í erfileikum með að rífa sjálf upp pakkana sína,með smá hjálp frá mömmunni, en henni Salóme fannst þetta sko ekki leiðinlegt
Salóme fór svo í 1 árs skoðun 28.okt og gekk bara rosa vel,reyndar ekki búin að þyngjast nema um 60gr.síðan í 10mánaðaskoðunnin og er hún 8.610gr og 76 cm, en eins og Sigurður barnalæknir sagði, þá er hún bara að halda kúrfunni sinni, þannig að hann sagði að þyrfti sko engar áhyggjur að hafa að því;) Hún var eins og hetja að fá sprautuna, heyrðist sko ekki múkk í henni, hélt bara á dúkku og var ahh... við hana
Já þeim þarna í ungbarnaeftirlitinu fannst hún bara æði og rosalega dugleg, litla píslin mín
Svefninn hjá dömunni gengur, já bara fínt sko
þetta er allt saman að koma
Salóme er sko algjööör... dúkkukerling, er svo góð við dúkkurnar og réttir framm hendurnar til þeirra,um að þær eigið að koma til hennar
bara sætt sko.... og beygir sig yfir þær, eins og hún sé voðalega stór sko
tíhí... endalaust gaman að fylgast með henni...
Fínt að hafa aðra mömmu svona til hliðar, því ekki veitir af því, því jú Salóime er sko að verða stóra systir í apríl, jebbjebb... litla barnið mitt að verða stóra systir
Það er bara gaman, ég er gengin 15 vikur og eigum við von á öðrum erfinga í lok apríl
Jæja þetta ætti nú að vera gott í bili...
Reyni við tækifæri að setja myndir í tölvuna hjá M&P til að henda síðan á netið
Ætlaði að reyna að stela mynd frá pabba, en það er bara ekki hægt.. tss tss
Hér er slóðin á myndina af afmælisprinsessunni http://album.123.is/?aid=122723
Biðjum bara að heilsa í bili....
Stækkandi fjölskyldan á Breiðhól 11 kveður....
Flettingar í dag: 14
Gestir í dag: 9
Flettingar í gær: 27
Gestir í gær: 6
Samtals flettingar: 85450
Samtals gestir: 33023
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 18:48:00

