Blogg

6.9.2008

Góðan og blessaðan daginn :)

Ætli það sé ekki bara kominn tími á smá bloggfærlu hér
Allt frábært að frétta af okkur öllum, allir hressi og kátir
Við fórum með Salóme í 10mánaða skoðurn 21.ágúst, já pæliði, litla barnið mitt er sko alveg að verða 1árs.. tss tss.... alltof fljótt að líða skal ég segja ykkur.... já hún mældist 72cm og 8.550gr. bara lítli og nett prinsessan Henni var hrósað alveg í bak og fyrir,af hjúkkunum og Sigurði, hversu falleg hún væri og náttla hversu dugleg hún væri því hún labbaði bara útum allt eins og herforingi Sigurður sagði að vera með þetta barn hliti nú að vera meira en 100% vinna, því að hún er alltaf á fullu þetta barn
Hún lætur hafa fyrir sér þessi dama og þannig að það nú bara að vera
Sigurður setti dós ofan í gat á borði og rétti svo Salóme dósina, og hún vissi alveg hvað hún átti að gera og reyndi að setja dósina ofan í gatið en að gekk smá brösulega, og hún þurfti nú líka að koma við hlutina sem voru í kring, er soldið handóð þessi elska
Já eins og ég sagði þá labbar litla prinsessan bara útum allt eins og sannkallaður hersforingi, hún er bara yndilseg
Ég dreif mig í rvk í gær til að kaupa loksins skó á barnið amman gaf nöfnu sinni fyrstu alvöru skónna sína. Keypti Steinar Waage skónna, hvíta... var soldið fúl að ljósbleiku skórnir voru búnir, en það þýðir ekket að gráta það
Salóme fannst nú soldið skrítið að ganga á skónum fyrst, en það kemur allt saman með tímanum

Síðasa þriðjudag fórum við mæðgunar í sund með Hjördísi og Helga Rúnari og það var sko stuð.... Salóme fannst það sko ekki leiðinlegt því að það var svo mikið af fólki í sundi, enda rosa flott veðrið. Nýja sundlaugin og allt svaka fínt
Helgi Rúnar fór í stóru rennibrautini og fannst það sko svaka stuð

Það var heljarinnar stuð á Sandgerðisdögum og mamma var með fullt af fólki í gúllassúpa á laugardeginu og heppnaðist það rosalega vel.
Sigurjón, Alberta Runný og Guðmundur Elí gistu hérna hjá okkur, jú það þurfti nú að koma miður fólkinu
Heljarinnar þátttaka var í göngunni, ekket smá flott allt saman
Djí svo þurfti náttla að byrja að rigna og Haglélin sem komu, þetta voru bara eins og snjóboltar
Við vorum í smástund niðrá bryggju en drifum okkur bara heim kl.eitthvað fyrir 10
Salóme var orðin þreytt, og ekki möguleiki að fara að sofa í kerrunni, gæti sko misst af einhverju og hún vildi bara vera að labba um allt, en það var bara ekki að gera sig því að það rigndi svo mikið... þannig að litla fjölskyldan rölti bara heim til sín

Svo er ljósanótt núna.. maður kíkir nú eitthvað í Keflavík í dag

Setti nokkrar nýjar myndir inn

Kærlig hilsen....

Ella og Salóme Kristín.

Skrifað 6.9.2008 kl. 9:47 af

Bein slóð á færslu

10 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 11
Gestir í dag: 8
Flettingar í gær: 27
Gestir í gær: 6
Samtals flettingar: 85447
Samtals gestir: 33022
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 18:26:01