Blogg

28.5.2008

Halló halló :)

Já góðan og blessaðan daginn

Hvað segja bændur þá ??
Héðan er allt frábært að frétta, sú stutta er búin að sofa síðustu 3 nætur í sínu herbergi, ekkert smá dugleg Það hefur bara gengið rosalega vel... Hún er örugglega bara fegin að vera komin með sér herbergi Hún vaknar einu sinni til að drekka og sefur svo út, eða til klukkan rúmlega 7 eða 8, aldeilis munur sko

Salóme finnst alltaf jafn gaman í sundinu, buslar og buslar, og spriklar og spriklar Maja mamma hennar Brynhildar segir að hún sé eins eins og höfrungur haha....

Við fjölskyldan fórum á Reynir vs.Víðir á fös. sem endaði með 1-1 jafntefli. Fjúkket...!! Salóme var vel dúðuð og horði bara á hvíta herinn styðja sína menn Róbert fór svo með hana heim í hálfleik, því að hún var ekki alveg að nenna sitja lengur í vagninum... skiljanlega stóðu allir í brekkunni að horfa á leikinn nema hún híhí....

Við Salóme og Margrét fórum á sunnudaginn í 4 ára afmæli hjá honum Gísla Steini okkar útí Garði og umm...fullt fullt af góðum kökkum...
Takk enn og aftur fyrir okkur

Á meðan við vorum í afmælinu var Róbert heima og flutti rúmið hennar Salóme í sitt herbergi og setti saman hilluna hennar
svakalega fínt allt saman


Salóme er farin að skríða aðeins meira
Hún er svo mikil snúlla þetta barn


Heyrðu já.. þetta ætti nú að vera nó í bili...

Nýjar myndir eru að flytjast inn á netið bara rétt í þessu

...endilega verið nú dugleg að kvitta fyrir komunni...
Mér finnst svo gaman að sjá hverjir eru að fylgjast með litlu prinsessunni minni

Biðjum að heilsa í bili

Ella og Salóme Kristín.

Skrifað 28.5.2008 kl. 11:26 af

Bein slóð á færslu

13 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

19.5.2008

Litla skottan sko..!!!

Já nú er allt af fara að stað skal ég segja ykkur....
haldiði ekki að litla prinsessan hafi skriðið smá áfram í morgun
Já hún var bara ber og auðvitað komin út á golf, og hún ætlaði sér að ná öndinni sinni og jájá.. það tókst skreið smá spotta til að ná henni, ýtti sér bara áfram með löppunum
Jii... ég er ekkert smá stollt af henni!!!

Já má nú ekki gleyma að segja frá litlu pelastelpunni minn jebb jebb sú stutta er hætt á brjósti...
á fim. kvöldið ætlaði ég bara svona að prófa og gá hvort að hún mundi vilja drekka mjólk úr pelanum sínum ( sem hún b.t.w. hefur aldrei viljað ) og jújú hún drakk mjólkina úr pelanum og sofnaði jii.. ég ætlaði bara ekki að trúa þessu, þannig að ég bara ákvað að hætta þá bara alveg, víst að hún hætti nú eiginlega bara sjálf, svo vaknaði hún kl.5 og þá ætlaði hún að mótmæla pelanum eikkað smá en drakk hann svo að lokum ekkert smá dugleg þessi elska

vildi bara deila þessu með ykkur

Ætla að fara að fá mér eitthvað í gogginn

Ella og Salóme Kristín pelastelpa

Skrifað 19.5.2008 kl. 11:54 af

Bein slóð á færslu

11 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

12.5.2008

Sæl veriði....

Já sælt veri fólkið, er ekki kominn tími á smá blogg

Salóme er búin að fara í sína fyrstu flugferð og var því á undan pabba sínum að koma í fyrsta skipti á Ísó Flugferðin gekk rosa vel, því það var sko nó að skoða hjá minni... það var sko ekki vandamálið   Ég ætlaði nú að láta hana drekka svo að hún fengi ekki hellur fyrir eyrun sín, en nei hún tók það sko ekki í mál, vildi bara skoða allt saman, þannig að flugferðin gekk bara rosa vel
Við fengum þetta líka góða veður á sumardaginn fyrsta, við böðuðum okkur bara í sólinni á svölunum hjá Möggu bara æðislegt sko.
Fermingin hjá Albertu var algjört æði og var hún sjálf ekkert smá flott eins og prinsessa bara

Salóme fór í 6mánaða skoðun 29.apríl og var hún orðin 68cm og 7.155gr. bara svaka flott litla daman okkar
Svo skoðaði Sigurður barnalæknir hana og var rosalega ánægður með hana og dásamaði henni svo, og sagði að hún ætti svo falleg augu mamman og pabbinn alveg að springa úr monti tíhí.... hún var svo sprautuð og grét hún smá eftir hana, en harkaði það svo bara af sér algjör hetja sko...

Salóme tekur alltaf dágóða spretti í hlaupagrindinni sinni, eins og afi hennar segir
Hún rúllar sér líka útum ALLT já alveg bókstaflega, bara æði að fylgast með henni
þegar hún er á maganum snýr hún sér þannig að hún rúlli að hlutnum sem hún ætlar að ná í bara sætt sko, veit alveg uppá hár hvað hún er að gera

Svo "talar" hún og "talar" hún segir mama, paba, ama, ava, abba, já hún er svo skýr þetta barn haha....og svo kann hún líka að öskra svona píkuskræki hahah......
Svo kann hún að sína hvað hún er stór, þegar við segju " Hvað er Salóme stór?" réttir hún upp hendunar ekkert smá dugleg skvísan...

Við erum búin að vera að taka svefninn hennar í geng, og gengur það Rosalega vel, ég er ekkert smá stollt af litlu snúllunni minni

Og svo eru mamman og pabbin sko búin að mála herbergið hennar og svonna, gera það svaka fínt
Róbert málaði einn vegg BLEIKAN, hann fékk sko áfall þegar ég opnaði málingardollun til að sína honum litlinn en þetta kemur bara helvíti flott út sko, þarf eiginlega að fara að taka myndir og setja inn, geri það næst

jæja váá... fer að fá krampa í puttanna mína....
jæja heyrist litla daman vera einmitt að vakna, tímanlegt

Er að setja líka fullt af myndum inn.....

Hafið það gott öllsömul

Kveðja Ella og Salóme Kristín

Skrifað 12.5.2008 kl. 16:26 af

Bein slóð á færslu

7 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 3
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 17
Gestir í gær: 11
Samtals flettingar: 85456
Samtals gestir: 33027
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 04:08:14